|
Útivist er hefur yfirleitt góð áhrif á heilsu fólks og stuðlar að almennri vellíðan. Ganga eflir þol fólks og eykur brennslu. Sérstaklega krefst það mikillar orku þegar gengið er í hæðóttu landi. Fæða og drykkir verða að vera hollir og næringarríkir. Eftir gönguferðir er nauðsynlegt að gera teygjuæfingar líkt og eftir aðra íþróttaástundun. Hér má finna góðar teygjuæfingar og gagnlegan fróðleik um útivist og hreyfingu.
Umgengni í Náttúru Íslands
Flest eigum við það sameiginlegt að vilja umhverfi okkar aðeins hið besta. Hér eru nokkur heilræði um umgengni í Náttúru Íslands.
Hendum ekki rusli á víðavangi.
Spillum ekki vatni, gróðri eða dýralífi.
Skemmum ekki sérstakar jarðmyndanir.
Ökum ekki utan vega eða merktra slóða.
Kveikjum ekki eld á víðavangi.
Fylgjum merktum göngustígum þar sem við á.
Skiljum við svæði, eins og við viljum koma að þeim
Það eina sem við skiljum eftir okkur eru fótsporin.
Það eina sem við tökum með okkur eru minningar og myndir.
Skórnir
Skótáknin eru notuð til að flokka gönguferðir í nokkur erfiðleikastig, til þess að þeir sem hyggjast taka þátt í ferðum geti metið hve erfiðar þær eru. Eftirfarandi viðmið eru oftast notuð til að flokka ferðirnar.
Athugið að hér er aðeins um viðmiðun að ræða. Einstakar ferðir geta fallið undir fleiri en einn flokk og ófyrirsjáanlegar breytingar á ytri aðstæðum, t.d. veðri, geta breytt því hversu erfið ferð reynist vera.
|