|
Lónsöræfi voru friðlýst árið 1977. Friðlandið Lónsöræfi er 320 km2 að flatarmáli og er við jaðar Vatnajökulsþjóðgarðs. Svæðið er geysilega fjölbreytt að því er varðar jarðmyndanir og gróðurfar, litadýrð mikil og frábært útsýni til fjalla og jökla. Litadýrð Lónsöræfa á rætur sínar að rekja til Kollumúlaeldstöðvar sem var virk í um eða yfir eina milljón ára fyrir 5,5-5,9 milljón árum síðan. Miðja eldstöðvarinnar hefur verið í Víðibrekkuskerjum skammt vestur af Illakambi. Mikill jarðhiti hefur fylgt eldstöðinni á sínum tíma en hann er nú alveg horfinn. Bændur í Lóni og Nesjum reka fé sitt til sumarbeitar á Lónsöræfum.
Nokkrir nytsamir GPS punktar af svæðinu.
|
Leirás Múlad.
|
N 64°39147
|
W 14°57.863
|
|
Háás
|
N 64°39.222
|
W 15°00.684
|
|
Hnútuvatn
|
N 64°39.061
|
W 15°04.395
|
|
Egilsel
|
N 64°36.655
|
W 15°08.739
|
|
Múlaskáli
|
N 64°33.165
|
W 15°09.092
|
|
Illikambur
|
N 64°32.798
|
W 15°08.193
|
|
Geldingafellsskáli
|
N 64°41.729
|
W 15°21.712
|
|
Kelduárvatn
suðurendi
|
N 64°40.478
|
W 15°18.243
|
|
Miðvatn
|
N 64°39.789
|
W 15°16.014
|
|
Vað á Vesturdalsá
v. útfall Fremstav.
|
N 64°39.272
|
W 15°14.378
|
|
Kollumúlavatn
nyrðri endi
|
N64°36.836
|
W 15°08.799
|
|
|
|
|
|