|
Ferðafélag Austur-Skaftfellinga var stofnað 9. mars árið 1980. Félagið er sjálfstæð deild í Ferðafélagi Íslands. Félagið hefur starfsaðstöðu í Nýheimum. Félagið á og rekur Múlaskála sem er staðsettur sunnan við Kollumúla á Lónsöræfum.
Skoða bókanir í Múlaskála
Strandgöngurnar eru nú hafnar á ný, en í vetur er áætlað
að ganga meðfram ströndinni frá Hvalnesi að Horni í nokkrum áföngum.
Næsta ferð:
LAXÁ - ÞORGEIRSSTAÐIR laugarlaginn 13. febrúar
Mætið í hlýjum fatnaði, með auka sokka og gott nesti.
Stígvél gætu verið nauðsynleg, allir velkomnir.
Ferðanefndin
Listi yfir útbúnað sem nauðsynlegt er að hafa þegar farið er í gönguferðir
| 1. Góðir skór |
| 2. Hlýjir sokkar |
| 3. Hælsærisplástrar |
| 4. Bakpoki |
| 5. Hlý nærföt (ekki bómullarföt) |
| 6. Vindheldur hlífðarfatnaður |
| 7. Húfa og vettlingar |
| 8. Orkuríkt nesti og eitthvað að drekka |
| 9. Göngustafir |
| |
|