|
Reglur um umgengni í Múlaskála |
- Þeir sem hafa pantað gistipláss í skálanum njóta forgangs. Skálavörður ráðstafar fólki í gistirými.
- Ekki má brenna sorpi á staðnum, gestir skulu taka með sér allt ólífrænt sorp til byggða. Lífrænt sorp má urða á staðnum.
- Reykingar eru stranglega bannaðar innan dyra.
- Ofneysla áfengis getur valdið brottvísun úr skála eða synjun um dvalarleyfi.
- Óheimilt er að hafa hunda eða önnur gæludýr innan dyra.
- Öllum ber að greiða fyrir afnot af skálanum. Ef skálavörður er ekki á staðnum má setja greiðslu í rauða sparigrísinn eða leggja greiðslu inn á reikning félagsins.
- Gestum skálans ber að þrífa hann við brottför og skilja við hann eins og þeir vildu koma að honum.
- Gestum ber að skola salerni eftir notkun og bursta ef með þarf og skilja við þau handa næsta manni eins og þeir vilja koma að þeim.
- Virðið fyrirmæli skálavarðar og landvarðar. Virðið reglur hússins og takið tillit til annarra gesta. Ró skal vera í húsinu frá kl. 24.00 – 07.00.
- Farið varlega og sparlega með gas og eld. Skiptið ekki um gaskúta inni í húsi.
- Sýnið viðkvæmri náttúrunni virðingu og gangið helst ekki utan merktra gönguleiða.
Vonum að þið njótið dvalarinnar á Lónsöræfum.
|