|
mánudagur, 02 nóvember 2009 |
Í tilefni af því að á næsta ári verða 30 ár liðin frá stofnun félagsins okkar er áætlað að hafa viðburði á vegum félagsins með veglegra móti, meðal annars fara til Noregs dagana 17. – 23. ágúst næsta ár. Til að skipuleggja ferðina fengum við til liðs við okkur Birnu og Bjössa sem eru Hornfirðingar og reka ferðaskrifstofuna Landsyn í Noregi. Þau munu skipta með sér fararstjórn og verða með hópnum allan tímann.
Hér má sjá drög að dagskrá ferðarinnar, ferd_til_noregs en hún gæti átt eftir að breytast eitthvað. Verð ferðarinnar er 6.000 norskar krónur, sem eru um það bil 129.000 miðað við gengi dagsins í dag, fyrir félagsmenn og 144.000 kr. fyrir aðra. ATH. að flug til og frá Osló er ekki innifalið í uppgefnu verði og félagsmenn hafa forgang í þessa ferð. Bent skal á að hægt er að ganga í félagið hvenær sem er. Rétt er einnig að taka fram að þetta verð miðast við að 2 gisti saman í herbergi á hótelum og 4 saman í húsum. Ef einhver vill vera einn í herbergi á hótelunum kostar það 250 nok eða 5.400 kr aukalega hverja nótt.
Greiðslufyrirkomulag:
Greiða þarf staðfestingargjald kr. 20.000 fyrir 1. desember n.k.
Staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt
1. mars kr 50.000
15. júlí lokagreiðsla.
Ekki er hægt að greiða með greiðslukortum, nema flugið sem menn bóka hver fyrir sig. Reynt verður að fá hagstætt tilboð í flug fyrir hópinn. Ef einhverjir vilja sigla með Norrænu geta þeir hitt hópinn á flugvellinum. Einnig er hægt að fljúga út fyrr, eða bæta við aukadögum í lokin. Allir slíkir útúrdúrar eru hins vegar á ábyrgð og kostnað hvers og eins.
Við hvetjum alla áhugasama til að hafa samband við:
Rögnu s. 662 5074 raggap(hjá)simnet.is
Möggu s. 868 7624 mallih(hjá)simnet.is
Björgu s. 699 1444 bjorgerl(hjá)hornafjordur.is
sem veita fúslega allar nánari upplýsingar.
|