|
Vćtutíđ er engin fyrirstađa |
|
miđvikudagur, 11 nóvember 2009 |
Þeir létu smá vætu og vind ekki hefta för sína garparnir sem mættu í strandgönguna laugardaginn 7. nóvember. Gengið var alla leið frá Svínhólum að Bæ í Lóni. Það kom á óvart hve Bæjarteigarnir eru víðáttumiklir og grösugir. Ekki skrítið þó landnámsmaðurinn Úlfljótur hafi numið þarna land. Um miðja 19. öld voru 8 ábúendur í Bæ og heimilismenn 62 þegar flest var. Í Bæ hefur nú verið byggt nýtt hús og gömlu húsin endurbyggð.
Á myndinni má sjá göngufólkið borða nesti við ströndina.
Hér má sjá fleiri myndir úr þessari ferð
|